HSS fékk nýtt ómskoðunartæki að gjöf
- Flokkur Fréttir
Nýja ómtækið er greiningartæki sem notað er til að greina meinsemdir í innri kynfærum kvenna og til að fylgjast með fósturmyndun og fósturþroska á meðgöngu.
Krabbameinsfélag Suðurnesja hafði frumkvæði af því að gefa tækið til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja en Konráð Lúðvíksson, kvensjúkdómalæknir, leitaði til félagsins. Krabbameinsfélagið leitaði svo áfram til Lions- og Lionessuklúbbanna á Suðurnesjum, Oddfellowstúkunnar Jóns forseta og Rótarýklúbbs Keflavíkur undir þeim formerkjum að „margt smátt gerir eitt stórt“.
Einn af stærstu bakhjörlum Krabbameinsfélags Suðurnesja í gjöfinni er svo Sigurður Wium Árnason sem á dögunum færði félaginu tvær milljónir króna að gjöf til minningar um konu hans, Auði Bertu Sveinsdóttur, og son þeirra, Svein Wium Sigurðsson, sem bæði létust úr krabbameini fyrir mörgum árum.
Stjórnendur og starfsfólk HSS kunna öllum sem að gjöfinni koma að sjálfsögðu bestu þakkir. Stuðningur einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja á Suðurnesjum í stóru sem smáu er sannarlega verðmætur.
Mynd er af vef Víkurfrétta
Síðast uppfært þriðjudagur, 08 janúar 2019 14:33