Nornahár

föstudagur, 30. ágúst 2024
Nornahár

Nornahár er örþunnar glernálar sem myndast í eldgosum þegar kvika kemur upp úr gosopi. Þetta eru kvikudropar og í hraðanum þar sem efnið er að þeytast upp frá gosstöðvunum teygist á efninu og myndar þessa glerjuðu þræði. Hárin eru mjög létt og geta borist langt en það fer eftir veðuraðstæðum hversu langt þau berast.

Ef nornahár berast á húð er best að blása eða skola þau af, þar sem þau geta valdið óþægindum ef þau stingast í húð líkt og um flís væri að ræða. Ef fólk handleikur nornahár eða stígur á þau getur það valdið ertingu og sársauka.

Vinsamlega forðist að börn stingi nornahárum upp í sig þar sem það gæti valdið köfnunarhættu. Einnig ætti að forðast að vera skólaus úti.