Skráning á heilsugæslustöð

Æskilegt er að skjólstæðingar sem þurfa á eftirliti og meðferð að halda hjá HSS séu skráðir á heilsugæslu HSS.

Skráning á heilsugæslustöð er framkvæmd á vef island.is í nokkrum skrefum:

  1. Skráningarsíðan opnuð: Skráning á helsugæslustöð - island.is með rafrænum skilríkjum.
  2. Í línunni "Heilsugæsla" kemur fram á hvaða stöð viðkomandi er skráður.
  3. Ef önnur stöð birtist en "Heilsugæslan Reykjanesbæ" þá þarf að smella á "Breyta skráningu" aftast í línunni.
  4. Valið er "Heilbrigðisumdæmi Suðurnesja"
  5. Valin er "Heilsugæslan Reykjanesbæ" með því að smella á "Vista" sem birtist aftast í línunni.
  6. Nú á uppfærð skráning að birtast á skjánnum.

Einnig er hægt að breyta skráningu með því að fylla út eyðublað í afgreiðslu HSS.