Dagdeild

Dagdeild er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 8:00 -16:00.

Dagdeildin sinnir lyfjagjöfum, þá aðallega lyf sem eru gefin í æð. T.d. krabbameinslyf, járnlyf, beinþynningarlyf, gigtarlyf, sýklalyf og líftæknilyf. Einnig eru blóðgjafir framkvæmdar á dagdeild.

Hvernig er hægt að panta tíma/viðtal:

Varðandi lyfjagjafir á dagdeild er best að tala við sinn lækni eða ráðgefandi hjúkrunarfræðing sem hafa samband við ritara Sjúkradeildar.

Símanúmer Sjúkradeildar er 422-0640