Nú leggjum við áherslu á að vernda starfsemi heilsugæslunnar til að geta haldið áfram að veita nauðsynlega heilsugæsluþjónustu.
Þess vegna biðjum við skjólstæðinga okkar sem eru með einkenni sem geta bent til COVID-19, að koma ekki á heilsugæsluna án þess að fara í sýnatöku.
Nánar um sýnatökur:
- Fólk með kvefeinkenni á að fara í PCR einkennasýnatöku og vera komið með niðurstöðu áður en komið er á heilsugæsluna.
- Einkennasýnataka er pöntuð á Mínum siðum á heilsuvera.is.
- Þau sem eru ekki með rafræn skilríki geta pantað símatíma í covid ráðgjöf í síma 4220500 og fengið strikamerki í einkennasýnatöku eða í netspjalli Heilsuveru.
- Gera þarf ráð fyrir að bið eftir niðurstöðum geti orðið allt að 48 tímar.
- Þau sem eiga brýnt erindi á heilsugæsluna, en eru með kvefeinkenni og geta ekki beðið eftir niðurstöðum úr PCR prófi þurfa að hafa samband við heilsugæsluna fyrir komu í síma 4220500.
- Ekki dugar að taka heimapróf, sjálfpróf eða hraðpróf.
Aðrar smitvarnir á heilsugæslustöðvum:
- Það er grímuskylda á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og við minnum á handþvott og handspritt. Höldum fjarlægð.
- Ekki eru leyfðir fylgdarmenn nema í sérstökum undantekningatilfellum, það á einnig við um Slysa- og bráðamóttökuna
Aðalnúmer
422-0500
Grindavík
422-0750
Vaktsími eftir lokun
1700
Neyðarnúmer
112