Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis opnuð á Suðurnesjum

mánudagur, 21. október 2024
Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis opnuð á Suðurnesjum

Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum opnar í dag. Miðstöðin er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS), lögreglustjórans á Suðurnesjum, Kvennaráðgjafarinnar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og WOMEN á Íslandi. Hjá Suðurhlíð verður boðið upp á áfallamiðaða ráðgjöf, stuðning og upplýsingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu mismunandi stofnana og samtaka sem koma að vinnu með þolendum á Suðurnesjum. Þjónustunotendum Suðurhlíðar er mætt með hlýlegu og öruggu umhverfi, á þeirra forsendum og þeim að kostnaðarlausu.

Suðurhlíð er systurmiðstöð Bjarkarhlíðar í Reykjavík, Bjarmahlíðar á Akureyri og Sigurhæða á Selfossi. Sem bjóða upp á sambærilega þjónustu.

Suðurhlíð er afurð verkefnisins Öruggari Suðurnes sem varð formlega til í nóvember 2023 þegar eftirtaldir aðilar undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um  svæðisbundið samráð um aðgerðir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á svæðinu; Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS), HSS, Heilsugæslan Höfða, Keilir, lögreglustjórinn á Suðurnesjum,  Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, og sýslumaðurinn á Suðurnesjum.

Opnunarhátíð Suðurhlíðar var haldin fimmtudaginn 17. október sl. á Marriott.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar Suðurnesjafólki til hamingju með opnun Suðurhlíðar, enda um stór framfaraskref í velferðarþjónustu við íbúa svæðisins.