Covid-19 heimsfaraldur veldur auknu álagi á bráðamóttöku HSS. Vegna mikillar fjölgunar smita undanfarið og tilkomu ómíkron- afbrigðisins viljum við koma eftirfarandi á framfæri:
- Vinsamlegast leitið ekki á bráðamóttöku vegna smávægilegra mála eða langvinnra vandamála án bráðrar versnunar
- Einstaklingar sem leita á bráðamóttöku með vandamál sem ekki eru metin bráð geta átt von á því að verða vísað í önnur úrræði
- Aðstandendum er óheimilt að fylgja skjólstæðingi inn á deildina og að dvelja á biðstofunni. Undantekningar eru gerðar fyrir börn og þá skjólstæðinga sem vegna fötlunar þurfa fylgd aðstandanda, eða ef sjúkdómsásand eða kringumstæður krefjast nærveru aðstandanda. Í þeim tilvikum er einum aðstandanda leyft að fylgja viðkomandi inn á deildina
- Mætið ekki til vinnu með einkenni sem gætu verið vegna kórónuveirusmits
- Pantið sýnatöku í gegnum Heilsuveru ef einkenna verður vart og dragið úr samskiptum við aðra þar til niðurstaða liggur fyrir
- Gætið að fjarðlægðartakmörkunum (2m), sprittið hendur og notið grímu þar sem ekki er hægt að tryggja fjarlægðarmörk
- Í neyðartilvikum skal hringja í 112
Aðalnúmer
422-0500
Grindavík
422-0750
Vaktsími eftir lokun
1700
Neyðarnúmer
112