Starfsemi rannsóknadeildar


Á rannsóknastofu HSS eru framkvæmdar grundvallarrannsóknir á sviði:

Blóðfræði: þ.e. blóðkornarannsóknir, vökvarannsóknir, storkurannsóknir, blóðgasmælingar.

Meinefnafræði: gerðar eru lífefnafræðilegar rannsóknir til greiningar á sjúkdómum, til mats á áhættu að fá sjúkdóma og til að fylgja eftir meðferð.

Sýklafræði: gerðar eru allar algengustu sýklaræktanir hjá HSS. Blóð-, saur-, klamydiu- og berklaræktanir eru sendar á sýkla- og veirufræðideild LSH til úrvinnslu.

Sýni (blóð, þvag) eru mæld og skoðuð samdægurs eða send til frekari úrvinnslu annars staðar, svör geta því borist strax eða allt að viku seinna.


Flest svör frá sýklarannsóknum koma eftir einn eða tvo daga. Ef senda þarf sýni til annarrar rannsóknastofu til úrvinnslu tekur lengri tíma að fá niðurstöðu.

Upplýsingar um rannsóknaniðurstöður veitir sá læknir, sem ávísaði rannsókninni, annað hvort í símatíma eða eftir nánara samkomulagi við sjúkling.


Opnunartími rannsóknarstofu er alla virka daga frá klukkan 08:00-15:00.

Rannsóknastofan er klínísk þjónustudeild og eru rannsóknir gerðar samkvæmt beiðnum lækna.